Færslur: 2007 Maí

05.05.2007 22:47

Timi fyrir blogg?

Það er ekkert smá langt síðan að ég bloggaði hér seinast. Kannski tími komin fyrir eitt stikki..

Það sem er að frétta af mér síðan í seinast bloggi er að ég er alveg að verða komin í sumarfrí, aðeins 3 próf eftir og sennilega eitt í endurtekt. Ég tók þátt í fergurðarsamkeppni, ég fór til Reykjavíkur, ég fór til akureyrar.. held að það sé þá upptalið.

Við Kristinn og Jói ætlum að leggja leið okkar til Reykjavíkur þann 18 maí til 20. Ætlum að finna útskrifta dressið á þá drengi;) Ég á víst að vera í ævintýralandi meðan þeir fara að verlsa;) Ætla þó lika að versla e-ð á mig. Fer nú ekki til Reykjavíkur án þess að versla e-ð.

Í sumar verða ég svo að bera út póstinn og vinna á shell og lika sem stuðningsfjölskylda..;) Þarf alveg öruglega ekki að láta mér leiðast.. Hef öruglega ekki tíma fyrir neitt annað en bara vinna.. Hitti kannski Kristinn aðeins á milli vinna;) En ég kvarta ekki, er vist dýrt að búa í Reykjavíkini.

Ég hlakka svo til að gera svo margt ennnnn kvíð lika fyrir svolitið mörgu!...
  • Sumarsins, klæða mig sumarlega og sætt
  • Fara til Tyrkland, slappa af ein með Kristni. (hann fær sko ekki að taka síman sinn með, þeir sem þekkja hann vita nu að hann stoppar ALDREI) ;)
  • Flytja suður og byrja að búa með elskunni minni.
  • Halda heimili, verlsa í matinn, bjóða fólki í mat og svona. Aðeins of spennandi.;)
  • Vera nær pabba, Hebu systir og fjöl, og honum Ella bróðir
  • En kvíð fyrir því að fara frá mömmu
  • Fara í nýjan skóla
  • Kynnast nýju fólki
  • Byrja í nýrri vinnu, þó að ég held að ég eigi eftir að sakna shell, og sakna þess að hanga á shell þegar að eðal er að vinna.

Já ég hlakka svo til að gera svo margt. Vonandi að þetta gangi bara allt upp. Mér finnst ég samt orðin svo e-ð gömul, að fara að búa. Ætli það sé ekki skritið að koma svo heim til mömmu og pabba og eiga ekki heima þar heldur bara e-r allt annarstaðar?? En þetta verður víst e-n að gerast.

Ætla að láta nokkrar myndir fylgja blogginu..;)



Apr 27, 2007
Kristinn að dimmitera..;) Loksins gat ég kallað hann í einn daga stóra engilinn minn;) Sæti.

Krúttið mitt ;)

Jæja ætla ekki að hafa þetta lengra...;)



  • 1
Flettingar í dag: 4
Gestir í dag: 2
Flettingar í gær: 10
Gestir í gær: 4
Samtals flettingar: 45068
Samtals gestir: 20582
Tölur uppfærðar: 17.5.2012 04:53:25